Lífið getur breyst á einu andartaki. En hvað verður um fjölskyldu og hjónaband þegar mest á reynir? Danielle Steel leiðir okkur í allan sannleikann um það. Alexandra Parker er með marga bolta á lofti. Hún starfar á virtri lögmannsstofu í New York, er gift og á þriggja ára barn. En þegar hún fær óvæntar fréttir um heilsuna skekur það stoðir hjónabandsins. Sam, maðurinn hennar, vinnur á Wall Street og á erfitt með að takast á við veikindi konu sinnar. Allt verður þetta til þess að þau fjarlægjast hvert annað og þegar annað áfall skellur á sem skilur þau enn meira að verður Alexandra að ákveða hvort hjónabandið sé þess virði að bjarga - og þá hvernig.
Dieser Download kann aus rechtlichen Gründen nur mit Rechnungsadresse in A, B, BG, CY, CZ, D, DK, EW, E, FIN, F, GR, HR, H, IRL, I, LT, L, LR, M, NL, PL, P, R, S, SLO, SK ausgeliefert werden.