Árið er 1860 og systkinin Robyn og Zouga Ballantyne eru um borð í bandarísku seglskipi. Eftir áralanga fjarveru er ferðinni heitið á æskuslóðir í Afríku. Þar hyggjast þau leita uppi föður sinn og halda áfram linnulausri baráttu hans gegn þrælahaldi. Á meðan á siglingunni stendur uppgötvar Robyn að skipstjórinn aðhefst hluti sem stríða stranglega gegn lífsgildum hennar og við það vakna blendnar tilfinningar innra með henni. Þegar á land er komið tekur við ósnortin náttúrufegurð, margslungnar persónur og óvænt atburðarás, sem mun reyna á fjölskylduböndin og móta framtíðina. Tilvalin lesning fyrir aðdáendur Kim Follett og Clive Cussler.
Dieser Download kann aus rechtlichen Gründen nur mit Rechnungsadresse in A, B, BG, CY, CZ, D, DK, EW, E, FIN, F, GR, HR, H, IRL, I, LT, L, LR, M, NL, PL, P, R, S, SLO, SK ausgeliefert werden.